Forskóli
Meginmarkmið forskóla námsins er að undirbúa nemendur sem best undir almennt hljóðfæranám.
Hvar fer kennslan fram?
Forskólakennslan fer fram í Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla á venjulegum skólatíma, þ.e.a.s.
þá sækja börn námið úr kennslustundum eða strax að loknum skóla.
Kennt er einu sinni í viku í 50 mínútur í senn.
Nemendur eru nokkur saman í hóp (Ath. takmarkaður fjöldi í hvern hóp).
Fyrir hverja er námið?
Forskóli er æskilegt nám fyrir nemendur í fyrsta og öðrum bekk grunnskóla en ekki nauðsyn.
Forskóli 1 miðast við börn í fyrsta bekk grunnskóla.
Forskóli 2 er framhald af Forskóla 1 og miðast við börn í öðrum bekk í grunnskóla.
Uppbygging náms
Uppistaða námsins er tónlistariðkun með ýmsum aðferðum s.s. söng, hreyfingu, slagverksleik, hlustun, tónlistarleikjum og sköpun. Börnin kynnast hinum ýmsu hljóðfærum, læra grunnatriðin í tónfræði svo sem nótur og ryþma og læra að spila á ukulele. Einnig er lögð mikil áhersla á söng.
Andrúmsloftið er létt og skemmtilegt og þörfum hvers og eins nemanda sinnt af bestu getu.
Í forskólanum er lítið sem ekkert heimanám og ekki er gerð krafa um að börnin eigi ukulele eða önnur hljóðfæri heldur kemur kennarinn með hljóðfærin í tíma.
Forskólahóparnir taka þátt í jóla- og vortónleikum skólans.
Kennari er Íris Rós Ragnhildardóttir.
Hvað kostar?
Verð fyrir allt skólaárið er 108.000,-
