Hafdís Bjarnadóttir
Gítar
Hafdís Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1977.
Hún lauk námi frá kennaradeild Tónlistarskóla FÍH árið 2001 og burtfararprófi á djassgítar frá sama skóla árið 2002.
Hafdís lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2007, og Meistaraprófi í tónsmíðum frá Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2009.
Hafdís býr og starfar sem gítarleikari, tónskáld og tónlistarkennari í Reykjavík.
Í tónsköpun sinni leggur Hafdís megináherslu á að brjóta niður múra milli mismunandi tónlistarstíla.
Á meðal fjölmargra verkefna sem hún hefur tekið sér
fyrir hendur má nefna verk fyrir sinfóníuverk unnið upp úr prjónauppskrift, þrjár sólóplötur þar sem tónlistarstílum og hljóðfærum er blandað saman á óvenjulegan hátt, kammersveitarverk unnið upp úr línuritum og tölum frá íslensku bönkunum á árunum 2007-2009, þrjú verk fyrir stórsveit, raftónlist fyrir innsetningar og hreyfimyndir, kvikmyndatónlist og ýmis pöntuð verk frá
tónlistarhátíðum, einstaklingum og kammerhópum hérlendis og erlendis.
Hafdís hefur komið víða fram sem rafgítarleikari og tónhöfundur bæði hér á landi sem og beggja megin atlantshafsins, m.a. á tónlistarhátíðunum Iceland Airwaves, ISCM World Music Days, Jazzhátíð Reykjavíkur, Myrkum músíkdögum, Tectonics,
heimssýningunni í Shanghai 2010 og Norrænum músíkdögum. Hún hefur hlotið ýmsar tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna í gegn um tíðina auk þess sem hún hlaut Kraumsverðlaunin árið 2017, og viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns árið 2022.
Nánari upplýsingar um tónlistarferil Hafdísar má finna á vefsíðunni www.hafdisbjarnadottir.com
