top of page

Algengar fyrirspurnir um námið
 

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla fer fram í Árbæjarskóla, Ártúnsskóla, Selásskóla, Ingunnarskóla, Norðlingaskóla og í húsnæði Tónlistarskóla Árbæjar, Stangarhyl 7 (húsnæði Tónhyls, gengið hægra megin við húsið og staðsett baka til). 
 

Hvernig virkar það eiginlega að sækja hljóðfæratíma á skólatíma?
Þegar nemandi mætir í tónlistartíma innan grunnskólans þá finnur tónlistarkennarinn í byrjun skólaárs hentugan tíma í stundaskránni, í samráði við forráðamenn og umsjónarkennara, sem að nemandi fær að fara úr.
Tónlistarskóli Árbæjar á í góðu samstarfi við grunnskólana upp á að fá að fara úr ákveðnum tímum til þess að fara í tónlistartíma.

Hvernig sæki ég um?

Sækja þarf um í gegnum heimasíðu skólans www.tonarb.net - Sækja um

Þar þarf að fylla út hvern lið fyrir sig og passa vel að allar upplýsingar séu réttar

Ef umsókn er samþykkt, þá er sendur út tölvupóstur því til staðfestingar

 

Hvernig borga ég fyrir námið?
Öll greiðsla fer fram í gegnum Abler. Þar er hægt að nýta Frístundakortið og veittur er 5% systkinaafsláttur.

 

Nemandi kemst ekki í tíma, hvernig læt ég vita?

Tónlistarskóli Árbæjar notast við nemendakerfið SpeedAdmin sem forráðamenn fá aðgang að. Í gegnum það er hægt að senda kennara SMS og tölvupóst til að láta vita af forföllum eða öðru slíku.

 

Barnið mitt er að fara í ferð á vegum skólans á meðan það á að vera í hljóðfæratíma, hvað geri ég?

Ef grunnskólinn fer í ferð eða út fyrir skólann þá ber Tónlistarskóli Árbæjar ekki ábyrgð á því að bæta upp hljóðfæratímann. 


Tónfræði og aukagreinar?

Hér er um nýjung að ræða í tónfræðakennslu þar sem nútíma upplýsingatækni er nýtt til að gera námið skilvirkara og skemmtilegra. Allt námsefni er á netinu, hljóð, margmiðlun, nótur, verkefni og gagnvirk próf. Nám þetta er einingabært í framhaldsskólum og grunnskólum.​

Tónfræðinám við Tónlistarskóla Árbæjar samanstendur af tónsmíðum, tónfræði, tónlistarsögu, hljóðfærafræði og tónheyrn. Ítarlegur vefstuðningur er við tónfræðanám nemenda. Fullkomnar kennslusíður með myndböndum og fullkomnum margmiðlunarsíðum tryggja skemmtilega og árangursríka kennslu.

 

Eru hljómsveitir?

Samspilshópar- minni og stærri samspilshópar þar sem hin félagslega hlið tónlistariðkunar er ræktuð. Samleikur og hlustun í mörgum mismunandi hópum s.s. rokksveitir, forskólahópar, þverflautusamspil, píanósamspil, gítarsamspil ofl.

 

Hvað með tónleika?
Við höldum stærri tónleika, jóla og vortónleika í Árbæjar og Guðríðarkirkju. Við höldum líka svokallaða tónfundi (litla tónleika) og fara þeir fram í sölum grunnskólanna og oft á öðrum skemmtilegum stöðum eins og Borgarbókasafni Árbæjar og Árbæjarsafni! 

 

Hvernig veit ég að námið er fullgilt tónlistarnám?

Allt nám í hljóðfæragreinum miðast við almenna námsskrá og eru þreytt stigspróf við skólann.
Þeir nemendur sem ekki taka stigspróf taka vorpróf. Verkefni og próf eru haldin í aukagreinum.

Er nauðsynlegt að eiga sjálfur píanó svo að hægt sé að æfa sig heima? 

Það er ekki nauðsynlegt fyrst um sinn að eiga fullbúið píanó.
Til eru góð rafmagnspíanó sem gott getur verið að byrja námið á. Ef sú leið er valin mælum við með að hljómborðið sé með venjulegum píanóáslætti.
Fyrir utan að vera augljóslega mun hagkvæmara fjárhagslega, en slík tæki þurfa ekki að vera mjög dýr, þá er það einnig kostur fyrir nemendur að geta æft sig með heyrnartólum og valda þannig litlu ónæði t.d. í fjölbýlishúsum.
Þegar líður á námið og verkin taka að þyngjast eykst samt þörfin á því að nemandi hafi aðgang að venjulegu píanói.

bottom of page