Ásthildur Ákadóttir
Píanó
Ásthildur Ákadóttir er tónlistarkona og tónlistarkennari.
Ásthildur lærði hjá Peter Máté og Eddu Erlendsdóttur í Listaháskólanum og lauk B. Mus. í klassískum píanóleik árið 2020.
Ásthildur lauk meistaranámi í hljóðfærakennslu (M. Mus. Ed.) frá Listaháskóla Íslands og útskrifaðist haustið2023. Samhliða því stundaði Ásthildur rytmískt píanónám við Tónlistarskóla FÍH, fyrst hjá Vigni Þóri Stefánssyni og síðar Inga Bjarna Skúlasyni.
Ásthildur hefur kennt á píanó síðan 2015 og leggur ríka áherslu á sköpun og spuna í sinni kennslu.
Máfurinn tónlistarsmiðja er hugsjónaverkefni Ásthildar og Ólínu Ákadóttur þar sem þær leiða skapandi tónlistarsmiðjur með það markmið að kveikja áhuga barna á tónlistarsköpun.
Máfurinn tónlistarsmiðja hefur flogið vítt og breitt um landið allt frá árinu 2023 og smiðjan hefur verið haldin við góðar undirtektir á Akranesi, Stöðvarfirði,
í Reykjavík og Kópavogi, í Reykjanesbæog Suðurnesjabæ.
Á síðustu árum hefur Ásthildur flutt nútímatónlist með kammersveitinni Steinöldu, spunahópnum Fengjastrúti og fleirum. Ásthildur var einnig meðlimur í hljómsveitinni Pascal Pinonen.
Hljómsveitin gaf út þrjár breiðskífur og hélt fjölmarga tónleika víða um Evrópu, í Kína og Japan.
Auk þess hefur hún leikið með hinum ýmsu hljómsveitum og tónlistarfólki bæði innanlands og erlendis.
