Fornámsbrautir
Í boði er annars vegar píanófornám og svo gítarfornám.
Litlir hóptímar, 40 mínútur einu sinni í viku (4 í hóp).
Námskeiðið er tilvalið fyrir börn sem sýnt hafa hljóðfæranámi áhuga og fá þannig tækifæri til að kynnast hljóðfæranámi í raun.
Aðeins í boði í Árbæjarskóla.
Birt með fyrirvara um þáttöku.
Píanófornám:
Í tímum er notast er við rafpíanó með eðlilegum áslætti. Hver nemandi er með eitt píanó og heyrnartól.
Kennari hefur aðgang að heyrnartólum nemenda til að aðstoða. Námskeiðið notast við speglaða kennslu, (flipped classroom) þ.e. námsefni er tekið upp á myndband fyrir nemendur. Þeir geta svo nálgast kennsluefnið á vefsíðu námskeiðsins.
Markmið námsins er fyrst og fremst að nemendur getið spilað einföld lög og æfingar en minni áhersla á nótnalestur.
Leiðbeinandi aldur er 8 ára og eldri. (Yngri nemendum er bent á forskóla Tónlistarskóla Árbæjar).
Gítarfornám:
Í tímum eru notaðir gítarar í hæfilegri stærð fyrir yngri nemendur. Sameiginleg verkefni eru unnin í tímum.
Námskeiðið notast við speglaða kennslu, (flipped classroom) þ.e. námsefni er tekið upp á myndband fyrir nemendur. Þeir geta svo nálgast kennsluefnið á vefsíðu námskeiðsins. Einnig fá nemendur kennsluefni í tímum.
Markmið námsins er fyrst og fremst að nemendur getið spilað einföld lög og æfingar en minni áhersla á nótnalestur.
Leiðbeinandi aldur er 8 ára og eldri. (Yngri nemendum er bent á forskóla Tónlistarskóla Árbæjar).
Verð fyrir allt skólaárið: 92.500,- kr.