top of page

Aðstoðarskólastjóri, skólaritari

Erla Stefánsdóttir

Erla lauk burtfaraprófi frá Tónlistarskóla FÍH úr jazz- og rokksöngdeild vorið 2011.
Hún stundaði einnig nám á rafbassa og á píanó í fjöldamörg ár.

Erla stundaði nám við söngleikjadeild Domus Vox og tók þátt í ýmsum uppfærslum á vegum deildarinnar og tók þátt í  jólauppfærslu Þjóðleikhússins á Þingkonunum undir stjórn Egils Ólafssonar og Benedikts Erlingssonar.

Hún er með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Breiðholts í myndlist, BA gráðu frá Listaháskóla Íslands í fatahönnun og lauk námi í Sölu, markaðs og rekstrarnámi hjá NTV skólanum 2021.

 

Erla hefur ferðast víða sem tónlistarkona og tekið þátt í ýmsum tónlistarviðburðum og má þar nefna tónleikaferðalag um Ísrael með sitt eigið verkefni DALÍ, kom fram á Glastonbury Festival með hljómsveitinni Grúska Babúska árið 2019, bassaleikur með listahópnum Áróru um Ítalíu og sem bakraddasöngkona með Gus Gus til að mynda.
Erla tók þátt sem bakrödd í framlagi Íslands í Eurovision í Portúgal árið 2018.  

Einnig hefur Erla verið í þungarokkssenunni í mörg ár sem bassaleikari og er forsprakki hljómsveitarinnar (Söngur, bassaleikur, laga- og textasmíðar) DALÍ sem vakti mikla athygli innan tónlistarsenunnar. Hún hefur tekið þátt í mörgum heiðurstónleikum í gegnum árin, t.d. Jeff Buckley, Alanis Morisette og Konur í rokki. 

Erla í söngleikjakórnum Viðlag og settu þau upp sýninguna ,,Við erum hér" árið 2024 sem hlaut mikið lof fyrir.

Erla var í dómnefnd Íslensku Tónlistarverðlaunanna í flokknum Popp, rokk, raf og hip hop árin 2020 og 2021.
Hún starfaði síðan sem formaður dómnefndar í sama flokki árin 2022 og 2023. 

 

Erla hefur verið forskólakennari, bassakennari og söngkennari til margra ára við Tónlistarskóla Árbæjar og er nú starfandi sem aðstoðarskólastjóri við skólann sem og skólaritari.

erlastefans@gmail.com   

493610575_10236492843320644_3244551714505989586_n.jpg
  • Facebook
bottom of page