top of page

Daníel Helgason

Gítar, bassi

Daníel útskrifaðist úr Tónskóla FÍH vorið 2012 á rafgítar. Hans helstu kennarar þar voru Andrés Þór Gunnlaugsson og Sigurður Flosason. Hann hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi síðustu ár og komið víða við. M.a. á hljómleikum með Kristjönu Stefánsdóttur, Stórsveit Samúels J. Samúelssonar og fleirum. Einnig hefur hann leikið inná fjölmargar upptökur sem ratað hafa inn á plötur, sjónvarpsþætti, heimildarmyndir og fleira.
Samhliða því að starfa sem gítarleikari hefur Daníel líka starfað sem bassaleikari, hljómborðsleikari, slagverksleikari og útsetjari ásamt því leika á allskyns strengjahljóðfæri.

 

Vorið 2016 útskrifaðist hann svo sem tónskáld úr Listaháskóla Íslands en þar nam hann undir handleiðslu Atla Ingólfssonar.

Hann hefur einnig ferðast víða um Evrópu að spila tónlist sína og annarra. Einnig hafa tónverk eftir hann verið leikin í Finnlandi og Danmörku ásamt því að vinna í nánu samstarfi við erlenda listamenn frá fjölmörgum löndum.

danielhelgason@gmail.com
Sími: 8680136

472316046_18479957560024362_6954551820121235990_n.jpg
bottom of page