top of page
Þórunn Þórsdóttir
Píanó

Þórunn lauk burtfararprófi á píanó frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 2009 þar sem aðalkennari hennar var Svana Víkingsdóttir.
Eftir það lá leiðin til Hollands þar sem hún nam við Tónlistarháskólana í Utrecht, hjá Sebastian Colombo og Hans Eijsackers, og svo í Maastricht hjá Katia Veekmans. Þar lauk hún prófi í píanóleik og píanókennslu.
Þórunn hefur komið víða fram og tekið þátt í ýmsum tónlistarhátíðum, og einnig masterklössum, bæði í Hollandi og á Íslandi.
bottom of page